2.3.2008 | 09:58
Föndur og skíði
Eftir að hafa farið með stuttuna mína í fimleika og tekið nokkar myndir (set inn myndir seinna, myndavélin er hjá mömmu), fórum við á skíði. Ég skellti mér í kvennagöngu til heiðurs Þórunnar Hyrnu. Á eftir var happdrætti, og hvað haldiði? Ég vann lúxus lambalæri frá Kjarnafæði, og auðvitað ætla ég að bjóða í mat í kvöld. Heima hjá foreldrunum auðvitað, því ég hef ekki besta borðplássið hérna til að bjóða í mat.
Svo hitti ég stelpurnar í gærkvöldi, vorum allar frekar þreyttar og andlausar. En afrakstur kvöldsins var ein og hálf síða. Ég skelli hér inn mynd af kláruðu síðunni. Hún er af Alexöndru að leika Móglí í frumskóginum. Hawaii rósin er sko frumskógurinn.
Athugasemdir
jeminn hvað síðan er flott og skemmtileg. Táslurnar eru bara æði. Leiðinlegt að ég komst ekki á laugardagskvöldið, en ég hlakkaði svo til að mæta. En vonandi kemst ég næst :0)
kveðja
Hafdís (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 08:59
Innlitskvitt
Góða helgi,
Kv. Lovísa.Lovísa , 15.3.2008 kl. 08:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.