Af bloggleti og fleiru

Ég er skelfilega blogglöt... ekki meira um það Shocking

 

Það er margt í þessum heimi sem pirrar mig, eins og þegar fólk er að fjölyrða um hluti sem það hefur ekki vit á. Það getur verið grátlegt að hlusta á fólk rökræða og jafnvel rífa sig yfir hlutum sem það þekkir ekki.

Það er samt enn fleira í þessum heimi sem gleður mig, eins og það hvað kemur góð lykt af öllu í rigningu. Allt verður líka fallegra á litinn.

Dóttir mín gleður mig meira en flest annað í þessum heimi, oftar en ekki kemur hún mömmu sinni í gott skap með yndisleik sínum og speki þeirra sem eru fjögurra ára. Við vorum að skoða myndir um daginn og hún sá mynd af Sean. Hún sagði um leið (mjög alvarlega) "Ég elska Sean". Ég sagði náttúrlulega að Sean elskar okkur líka og bráðum kæmi hann til að vera hjá okkur. Þá sagði hún "hann kemur á afmælinu mínu á morgun, við hringjum í hann og hann kemur. Ég þarf bara að sofa í viku og þá á ég afmæli!!".

Hún á afmæli 19. september Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband